Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 28. mars 2025

Stofnreglugerð

182/2025

Reglugerð um veiðar íslenskra skipa á loðnu.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til loðnuveiða íslenskra skipa úr fiskveiðilandhelgi Íslands, Grænlands og Jan Mayen.

2. gr. Heimild til veiða.

Skipum sem hafa aflamark í loðnu er heimilt að stunda loðnuveiðar á tímabilinu 15. október til 30. apríl. Veiðar umfram aflamark í loðnu varða gjaldtöku samkvæmt ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólöglegs sjávarafla.

Óheimilt er að stunda veiðar á loðnu í lögsögu annarra ríkja en skv. 1. gr., nema að fenginni staðfestingu Fiskistofu á fyrirliggjandi leyfi frá viðkomandi stjórnvöldum.

3. gr. Búnaður.

Skipum sem stunda loðnuveiðar er óheimilt að vera með þannig útbúnað að mögulegt sé að dæla úr tönkum skips undir yfirborði sjávar.

4. gr. Veiðisvæði.

Loðnuveiðar eru heimilar í fiskveiðilandhelgi Íslands, Grænlands og Jan Mayen. Þó er íslenskum skipum einungis heimilt að stunda loðnuveiðar austan Hvarfs og norðan 64°30´N í lögsögu Grænlands og er þeim þar aðeins heimilt að veiða 35% af leyfilegum heildarafla íslensku skipanna. Í lögsögu Jan Mayen er þeim aðeins heimilt að veiða 35% af leyfilegum heildarafla íslensku skipanna til 15. febrúar ár hvert.

Við loðnuveiðar í lögsögu annarra ríkja skal fara eftir reglum sem viðkomandi stjórnvöld setja, auk þess skal tilkynna til Fiskistofu þegar farið er inn í og út úr viðkomandi lögsögu, ásamt upplýsingum um afla um borð í báðum tilvikum, og daglega skal tilkynna um afla síðastliðinn sólarhring. Tilkynningar skal senda á netfangið uthafsv@fiskistofa.is.

5. gr. Landanir.

Loðnuafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn.

Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa loðnu til bræðslu og heilfrystri loðnu í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtaðri loðnu um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar loðnu utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætlað magn loðnu. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda loðnunnar, eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir.

Heimilt er að miðla afla úr veiðarfærum á miðunum, milli skipa sem hafa leyfi til loðnuveiða í því skyni að koma í veg fyrir að loðnu sé sleppt dauðri úr veiðarfærum. Fái veiðiskip svo stórt kast að skipstjóri telji að ekki sé lestarrými fyrir þann afla sem hann áætlar að sé í nótinni og ekkert skip nærstatt til að miðla loðnuafla til, skal heimilt áður en verulega er þrengt að loðnunni í nótinni að sleppa niður lifandi loðnu sem fyrirsjáanlega rúmast ekki í lestum skipsins. Vinnsluskipum er ekki heimilt að sleppa niður loðnu til að samræma afla vinnslugetu.

6. gr. Veiðisvæði flotvörpu.

Aðeins er heimilt að stunda loðnuveiðar með flotvörpu innan svæðis sem afmarkast af línum sem dregnar eru milli eftirfarandi punkta:

  1. 67°11´N - 014°30´V
  2. 68°00´N - 014°30´V
  3. 68°00´N - 008°30´V
  4. 65°15´N - 008°30´V
  5. 65°15´N - 011°20´V
  6. 66°05´N - 011°30´V
  7. 66°15´N - 012°00´V
  8. 66°12´N - 012°22´V
  9. 66°40´N - 012°40´V
  10. 66°47´N - 013°00´V
  11. 66°52´N - 013°08´V
  12. 67°11´N - 014°30´V

Ráðuneytið getur takmarkað eða bannað loðnuveiðar á ákveðnum svæðum í tiltekinn tíma þyki ástæða til þess, m.a. vegna verndunarsjónarmiða og til þess að stuðla að sem bestri hagnýtingu loðnustofnsins.

7. gr. Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofa sjávar, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.

8. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 16. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 2. gr., 3. gr., 5.gr., 6. gr., 8. gr. og 30. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, 5. gr., 6. gr., 8. gr. og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og 3. gr., 4. gr., 6. gr., 7. gr., 8. gr., 18. gr. og 19. gr. laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.

Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1200/2022 um loðnuveiðar íslenskra skipa á vetrarvertíð 2022/2023.

Matvælaráðuneytinu, 20. febrúar 2025.

Hanna Katrín Friðriksson
atvinnuvegaráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.