Fara beint í efnið

Prentað þann 27. apríl 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 1. des. 2018 – 23. maí 2020 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 1. des. 2018 af rg.nr. 1081/2018

180/2014

Reglugerð um áhöfn í almenningsflugi.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi.

Kröfur reglugerðar (ESB) nr. 1178/2011, sem innleidd er með reglugerð þessari, skulu gilda eftir því sem við á um þjálfun og skírteini flugliða á loftförum sem tilgreind eru í a-d-lið og h-lið II. viðauka við reglugerð (EB) nr. 216/2008, sem innleidd er með reglugerð nr. 812/2012, og falla utan gildissviðs reglugerðar (ESB) nr. 1178/2011, og um þjálfun og skírteini flugliða sem taka þátt í starfrækslu loftfara sem skráð eru á Íslandi og sinna lög- og tollgæslu, leit og björgun, slökkvistarfi, landhelgisgæslu eða sambærilegum verkefnum.

2. gr. Lögbært yfirvald og framkvæmd.

Samgöngustofa telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari og sér um framkvæmd hennar.

II. KAFLI Efnisákvæði.

3. gr.

Flugliði sem tekur þátt í starfrækslu loftfars sem fellur undir 2. mgr. 1. gr. skal hafa gilt skírteini og heilbrigðisvottorð skv. reglugerð (ESB) nr. 1178/2011.

4. gr.

Þjálfun og próf fyrir flugliða sem taka þátt í starfrækslu loftfars sem fellur undir 2. mgr. 1. gr. skulu uppfylla kröfur skv. reglugerð (ESB) nr. 1178/2011.

5. gr.

Til að viðhalda réttindum til að starfrækja loftfar sem fellur undir 2. mgr. 1. gr. skal flugliði uppfylla kröfur reglugerðar (ESB) nr. 1178/2011 um framlengingu og endurnýjun.

6. gr.

Fartími og hæfni-/færnipróf á loftfar sem fellur undir gildissvið reglugerðar (ESB) nr. 1178/2011 er viðurkennt til framlengingar eða endurnýjunar réttinda fyrir samsvarandi loftfar og fellur undir 2. mgr. 1. gr.

7. gr.

Fartíma á loftfar sem fellur undir 2. mgr. 1. gr. skal telja í samræmi við kröfur skv. reglugerð (ESB) nr. 1178/2011. Fartíma skal færa í flugdagbók sem uppfyllir kröfur reglugerðar (ESB) nr. 1178/2011.

8. gr.

Flugliði á loftfari sem fellur undir 2. mgr. 1. gr. skal uppfylla skilyrði reglugerðar (ESB) nr. 1178/2011, til þess að fljúga með farþega.

9. gr.

Tegundaráritun á loftfar sem fellur undir 2. mgr. 1. gr. skal skrá á sérstakt fylgiskjal með flugliðaskírteini skv. reglugerð (ESB) nr. 1178/2011.

10. gr.

Varðandi þjálfun og skírteini flugliða á loftfari sem fellur undir 2. mgr. 1. gr. er Samgöngustofu heimilt að veita undanþágu frá skilyrðum reglugerðarinnar um próf og þjálfun, t.d. er varðar próf í flughermi. Skal slík undanþága einungis veitt sé það að mati Samgöngustofu sérstökum vandkvæðum bundið að fullnægja viðeigandi kröfum, af ástæðum sem rekja má beint til eiginleika loftfarsins. Ekki skal veita undanþágu nema fullnægjandi öryggi sé tryggt að mati Samgöngustofu.

III. KAFLI Lokaákvæði.

11. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins og framkvæmdastjórnarinnar með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1178/2011 frá 3. nóvember 2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2013 frá 16. júlí 2013, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56 frá 10. október 2013, bls. 175.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 290/2012 frá 30. mars 2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir vegna flugverja í almenningsflugi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2013 frá 16. júlí 2013, er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56 frá 10. október 2013, bls. 669.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 70/2014 frá 27. janúar 2014 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 193/2014 frá 25. september 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 30. október 2014, bls. 357.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 245/2014 frá 13. mars 2014 sem breytir reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða áhöfn í almenningsflugi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 234/2014 frá 24. október 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 4. desember 2014, bls. 577.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/445 frá 17. mars 2015 sem breytir reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir vegna flugverja í almenningsflugi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163 frá 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 15. október 2015, bls. 766.
  6. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/539 frá 6. apríl 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar þjálfun, prófanir og reglubundið mat á hæfni flugmanna í tengslum við hæfisbundna leiðsögu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 126 frá 3. júní 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52 frá 22. september 2016, bls. 627.
  7.  Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1065 frá 27. júlí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1178/2011 að því er varðar sjálfvirka fullgildingu flugliðaskírteina í Sambandinu og þjálfun í flugtaki og lendingu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 217 frá 26. október 2018, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 8. nóvember 2018, bls. 414.

12. gr. Refsiákvæði.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða refsingu samkvæmt 141. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.

13. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. og 73. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Um leið falla úr gildi reglugerðir nr. 401/2008, 402/2008 og 403/2008.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.