Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 26. júní 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 17. feb. 2014 – 25. jan. 2018 Sjá núgildandi

163/2014

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 932/2012, frá 3. október 2012, um kröfur varðandi visthönnun þurrkara til heimilisnota.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 26e í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2013, frá 3. maí 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 932/2012 frá 3. október 2012 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun þurrkara til heimilisnota.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 932/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28/2013, 16. maí 2013, bls. 284.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 12. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. janúar 2014.

Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Ingvi Már Pálsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.