Prentað þann 22. des. 2024
162/2007
Reglugerð um breytingu á reglugerð um skotvopn, skotfæri o.fl. nr. 787/1998 með síðari breytingum.
1. gr.
Á eftir 4. tölulið 1. gr. bætist nýr töluliður svohljóðandi:
5. "Skotfæri" eru hvers konar skot eða skeyti sem gerð eru til að skjóta úr skotvopnum.
Þeir hlutir sem getið er um í viðauka II teljast vera skoteldar eða skotfæri. Leiki vafi á undir hvorn flokkinn hlutir falla þá sker ríkislögreglustjóri úr, að fenginni umsögn Vinnueftirlitsins.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka reglugerðarinnar:
a. Í stað orðsins "VIÐAUKI" kemur: VIÐAUKI I.
b. Í stað tölustafsins "1" fyrir framan "Aðrar viðurkenndar keppnisgreinar" kemur: 2.
3. gr.
Við reglugerðina bætist nýr viðauki, viðauki II, svohljóðandi:
VIÐAUKI II
Hlutir sem taldir eru vera flugeldavörur eða skotfæri
í viðeigandi tilmælum Sameinuðu þjóðanna (SÞ).
SÞ nr. | Heiti og lýsing | Flokkur/deild | Orðalisti (skal aðeins notast sem leiðarvísir til upplýsingar) |
G-flokkur | |||
0009 | Íkveikjuskotfæri, með eða án sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu | 1.2 G | Skotfæri Almennt heiti sem tengist aðallega hlutum sem notaðir eru í hernaði og samanstanda af hvers konar sprengjum, handsprengjum, eldflaugum, jarðsprengjum, skeytum og öðrum áþekkum búnaði Íkveikjuskotfæri Skotfæri sem innihalda íkveikjuefni. Nema þegar samsetningin er í sjálfu sér sprengiefni, innihalda skotfærin einnig eitt eða fleira af eftirfarandi: drifhleðslu með hvellhettu og kveikihleðslu, kveikibúnað með sundrara eða kasthleðslu |
0010 | Íkveikjuskotfæri, með eða án sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0009 |
0015 | Reykskotfæri með eða án sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu | 1.2 G | Reykskotfæri Skotfæri sem innihalda reykmyndandi efni. Nema þegar efnið er í sjálfu sér sprengiefni, innihalda skotfærin einnig eitt eða fleira af eftirfarandi: drifhleðslu með hvellhettu og kveikihleðslu, kveikibúnað með sundrara eða kasthleðslu |
0016 | Reykskotfæri með eða án sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0015 |
0018 | Táraframkallandi skotfæri með sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu | 1.2 G | Táraframkallandi skotfæri með sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu. Skotfæri sem innihalda táraframkallandi efni. Þau innihalda einnig eitt eða fleira eftirfarandi: skoteldaefni, drifhleðslu með hvellhettu og kveikihleðslu, kveikibúnað með sundrara eða kasthleðslu |
0019 | Táraframkallandi skotfæri með sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0018 |
0039 | Myndatökublossasprengjur | 1.2 G | Sprengjur Sprengifimir hlutir sem varpað er úr flugvél. Þeir geta innihaldið eldfiman vökva með sundrunarhleðslu, samsetningu fyrir myndatökublossa eða sundrunarhleðslu. Hugtakið tekur til: myndatökublossasprengna |
0049 | Blossaskothylki | 1.1 G | Blossakothylki Hlutir sem samanstanda af hylki, hvellhettu og blossapúðri, samsettir í eitt stykki sem reiðubúið er til skots |
0050 | Blossaskothylki | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0049 |
0054 | Merkjaskothylki | 1.3 G | Merkjaskothylki Hlutir hannaðir til að skjóta litblysum eða öðrum merkjum úr merkjabyssum, o.s.frv. |
0066 | Kveikiþráður | 1.4 G | Kveikiþráður Hlutur sem samanstendur af tauþræði sem hefur verið húðaður með svörtu púðri, eða öðru slíku skoteldaefni sem brennur hratt, og sveigjanlegri hlífðarkápu, eða hlutur sem samanstendur af kjarna úr svörtu púðri sem er umlukinn sveigjanlegu ofnu efni. Þráðurinn brennur með framrás eftir lengd sinni með utanáloga og er notaður til að senda kveikingu frá búnaði yfir í hleðslu |
0092 | Yfirborðsblys | 1.3 G | Blys Hlutir sem innihalda skoteldaefni og eru hannaðir til að lýsa, auðkenna, gefa merki eða vara við |
0093 | Loftblys | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0092 |
0101 | Kveikiþráður, ekki sprengifimur | 1.3 G | Kveikiþráður/kveikibúnaður (enska: Fuse/Fuze) Þó að orðin séu skyld (franska: fusée, fusil) og séu stundum talin vera mismunandi stafsetning á sama orði er gagnlegt að viðhalda þeirri venju að kveikiþráður (fuse) vísi til kveikibúnaðar (fuze) sem svipar til þráðar af einhverju tagi en kveikibúnaður til búnaðar í skotfærum sem getur verið ýmist vélbúnaður, rafbúnaður, efnasamband eða vökvabúnaður og kemur af stað tundurslóð með sprengibruna eða sprengingu Kveikiþráður, tafarlaus, ekki sprengifimur Hlutur sem samanstendur af bómullarþræði sem hefur verið mettaður með fínu svörtu púðri (quickmatch). Brennur með utanáloga og er notaður í kveikislóðum fyrir flugelda o.s.frv. |
0103 | Kveikirör, málmklætt | 1.4 G | Kveikirör, málmklætt Hlutur sem samanstendur af málmröri og kjarna fylltum sprengibrunaefni. |
0171 | Lýsandi skotfæri, með eða án sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu | 1.2 G | Lýsandi skotfæri, með eða án sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu. Skotfæri sem hönnuð eru til að gefa frá sér sterkt, stakt ljós til að lýsa upp svæði. Hugtakið tekur til lýsandi skothylkja, handsprengna og skeyta auk lýsandi sprengna og sprengna til að auðkenna skotmörk |
0191 | Handmerkjablys | 1.4 G | Hlutir hannaðir til að gefa merki |
0192 | Hvellmerki fyrir járnbrautir | 1.1 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0191 |
0194 | Neyðarmerki, fyrir skip | 1.1 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0191 |
0195 | Neyðarmerki, fyrir skip | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0191 |
0196 | Reykmerki | 1.1 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0191 |
0197 | Reykmerki | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0191 |
0212 | Ljósspor fyrir skotfæri | 1.3 G | Ljósspor fyrir skotfæri Innsiglaðir hlutir sem innihalda skoteldaefni, hannaðir til að sýna feril skeytis |
0254 | Lýsandi skotfæri, með eða án sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0171 |
0297 | Lýsandi skotfæri, með eða án sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu. | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0254 |
0299 | Myndatökublossasprengjur | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0039 |
0300 | Íkveikjuskotfæri, með eða án sundrara, kasthleðslu eða drifhleðslu. | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0009 |
0301 | Táraframkallandi skotfæri, með sundrara, kasthleðslu | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0018 |
0303 | Reykskotfæri, með eða án sundrara, kasthleðslu | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0015 |
0306 | Ljósspor fyrir skotfæri | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0212 |
0312 | Merkjaskothylki | 1.4 G | Merkjaskothylki Hlutir hannaðir til að skjóta litblysum eða öðrum merkjum úr merkjabyssum |
0313 | Reykmerki | 1.2 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0195 |
0318 | Hand- eða riffilæfingasprengjur | 1.3 G | Hand- eða riffilæfingasprengjur Hlutir sem eru hannaðir til þess að vera kastað með handafli eða varpað með riffli. Hugtakið felur í sér: Hand- eða riffilæfingasprengjur |
0319 | Rörhvellhetta | 1.3 G | Rörhvellhetta Hlutir sem samanstanda af hvellhettu til kveikingar og viðbótarhleðslu af sprengibrunaefni eins og svörtu púðri til að kveikja í drifhleðslu í skothylki t.d. fyrir fallbyssu |
0320 | Rörhvellhetta | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0319 |
0333 | Skoteldar | 1.1 G | Skoteldar Flugeldavörur hannaðar til að skemmta |
0334 | Skoteldar | 1.2 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0333 |
0335 | Skoteldar | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0333 |
0336 | Skoteldar | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0333 |
0362 | Æfingaskotfæri | 1.4 G | Æfingaskotfæri Skotfæri án aðalsundrunarhleðslu, sem innihalda sundrara eða kasthleðslu. Yfirleitt innihalda þau einnig kveikibúnað og drifhleðslu |
0363 | Prófunarskotfæri | 1.4 G | Prófunarskotfæri Skotfæri sem innihalda skoteldaefni, notuð til að prófa nothæfi eða styrk nýrra skotfæra, vopnaíhluta eða -samsetninga. |
0372 | Hand- eða riffilæfingasprengjur | 1.2 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0318 |
0373 | Handmerkjagjafi | 1.4 S | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0191 |
0403 | Loftblys | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0092 |
0418 | Yfirborðsblys | 1.2 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0092 |
0419 | Yfirborðsblys | 1.1 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0092 |
0420 | Loftblys | 1.1 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0092 |
0421 | Loftblys | 1.2 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0092 |
0424 | Treg skeyti, með ljósspori | 1.3 G | Skeyti Hlutir s.s. sprengikúlur eða byssukúlur sem skotið er úr fallbyssu eða annars konar stórskotaliðsbyssu, riffli eða öðru smærra vopni. Þeir geta verið tregir, með eða án ljósspors, eða geta innihaldið sundrara eða kasthleðslu, eða sundrunarhleðslu. Hugtakið felur í sér: Treg skeyti, með ljósspori, skeyti með sundrara eða kasthleðslu, skeyti með sundrunarhleðslu |
0425 | Treg skeyti, með ljósspori | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0424 |
0428 | Flugeldavörur til tækninota | 1.1 G | Flugeldavörur til tækninota Hlutir sem innihalda skoteldaefni til tækninota s.s. varmaframleiðslu, gasframleiðslu, fyrir sjónspil, o.s.frv. Hugtakið tekur ekki til eftirfarandi hluta sem eru skráðir sérstaklega: allra skotfæra, merkjaskothylkja, sprengihöggvara fyrir strengi/kaðla, flugelda, loftblysa, yfirborðsblysa, sleppibúnaðar með sprengiefni, sprengihnoða, handmerkjagjafa, neyðarmerkja, hvellmerkja fyrir járnbrautir, reykmerkja |
0429 | Flugeldavörur til tækninota | 1.2 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0428 |
0430 | Flugeldavörur til tækninota | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0428 |
0431 | Flugeldavörur til tækninota | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0428 |
0434 | Skeyti með sundrara eða kasthleðslu | 1.2 G | Skeyti Hlutir s.s. sprengikúlur eða byssukúlur sem skotið er úr fallbyssu eða annars konar stórskotaliðsbyssu, riffli eða öðru smærra vopni. Þeir geta verið tregir, með eða án ljósspors, eða geta innihaldið sundrara eða kasthleðslu eða sundrunarhleðslu. Hugtakið felur í sér: Treg skeyti, með ljósspori, skeyti með sundrara eða kasthleðslu, skeyti með sundrunarhleðslu |
0435 | Skeyti með sundrara eða kasthleðslu | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0434 |
0452 | Hand- eða riffilæfingasprengjur | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0372 |
0487 | Reykmerki | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0194 |
0488 | Æfingaskotfæri | 1.3 G | Æfingaskotfæri Skotfæri án aðalsundrara, sem innihalda sundrara eða kasthleðslu. Yfirleitt innihalda þau einnig kveikibúnað og drifhleðslu. Hugtakið felur ekki í sér eftirfarandi vörur sem eru skráðar sérstaklega: Æfingahandsprengjur |
0492 | Hvellmerki fyrir járnbrautir | 1.3 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0194 |
0493 | Hvellmerki fyrir járnbrautir | 1.4 G | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0194 |
0503 | Öryggispúðauppblásarar eða öryggispúðaeiningar eða sætisbeltastrekkjarar | 1.4 G | |
S-flokkur | |||
0110 | Hand- eða riffilæfingasprengjur | 1.4 S | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0318 |
0193 | Hvellmerki fyrir járnbrautir | 1.4 S | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0194 |
0337 | Flugeldar | 1.4 S | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0334 |
0345 | Treg skeyti, með ljósspori | 1.4 S | Skeyti Hlutir s.s. sprengikúlur eða byssukúlur sem skotið er úr fallbyssu eða annars konar stórskotaliðsbyssu, riffli eða öðru smærra vopni. Þeir geta verið tregir, með eða án ljósspors eða geta innihaldið sundrara eða kasthleðslu, eða sundrunarhleðslu |
0376 | Rörhvellhetta | 1.4 S | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0319 |
0404 | Loftblys | 1.4 S | Sjá færslu fyrir SÞ nr. 0092 |
0405 | Merkjaskothylki | 1.4 S | Merkjaskothylki Hlutir hannaðir til að skjóta litblysum eða öðrum merkjum úr merkjabyssum, o.s.frv. |
0432 | Flugeldavörur til tækninota | 1.4 S |
4. gr.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt vopnalögum nr. 16/1998, svo og með hliðsjón af tilskipun 2004/57/EB öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 14. febrúar 2007.
Björn Bjarnason.
Gunnar Narfi Gunnarsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.