Prentað þann 28. apríl 2025
154/2016
Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 812/2013, frá 18. febrúar 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar vatnshitara, geymslutanka fyrir heitt vatn og pakka með vatnshitara og búnaði sem nýtir sólarorku.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 4t og 11t í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 310/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 812/2013 frá 18. febrúar 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar vatnshitara, geymslutanka fyrir heitt vatn og pakka með vatnshitara og búnaði sem nýtir sólarorku.
2. gr.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 812/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5/2016, 28. janúar 2016, bls. 827.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. febrúar 2016.
Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Erla Sigríður Gestsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.