Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 20. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 22. feb. 2016 – 25. jan. 2018 Sjá núgildandi

153/2016

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 666/2013, frá 8. júlí 2013 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun ryksugna.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 6d, 6j, 26e, og 26k í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 307/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 666/2013, frá 8. júlí 2013, um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun ryksugna.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 666/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5/2016, 28. janúar 2016, bls. 804.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 16. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem tengist orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. febrúar 2016.

Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.