Fara beint í efnið

Prentað þann 22. des. 2024

Breytingareglugerð

145/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð um neysluvatn, nr. 536/2001.

1. gr.

4. mgr. 12. gr. liður a) orðist svo:

a) reglubundnu eftirliti með rannsóknaþáttum sem tilgreindir eru í töflum 4 og 5 í viðauka I og samkvæmt lágmarkstíðni sem tilgreind er í töflu 6 í viðauka I eða töflu 7 ef um átappað vatn er að ræða. Matvælastofnun getur heimilað allt að 50% frávik frá lágmarkstíðni greininga sem tilgreind eru í töflu 6 fyrir mismunandi rannsóknaþætti í töflum 4 og 5 ef:
  1. mæligildi úr sýnum sem tekin eru a.m.k. í 2 ár í röð eru stöðug og verulega lægri en hámarksgildin og
  2. ekkert hefur komið í ljós sem bendir til að spilli gæðum neysluvatnsins.

2. gr.

1. mgr. 19. gr. orðist svo:

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. Einnig var höfð hliðsjón af ákvæðum samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, sem vísað er til í XX. viðauka, II. kafla, 3. tölul., tilskipunar 75/440/EBE um kröfur varðandi gæði yfirborðsvatns í aðildarríkjunum sem nýtt er til drykkjar, 5. tölul. tilskipunar 79/869/EBE um mæliaðferðir og tíðni sýnatöku og greiningar á yfirborðsvatni sem nýtt er til drykkjar í aðildarríkjunum og 7. tölul. a) tilskipunar 98/83/EB um gæði neysluvatns. Einnig með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XX. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Þá er reglugerðin sett að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, sbr. ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

3. gr.

Viðauki I., tafla 6, athugasemd nr. 3 orðist svo:

  1. Matvælastofnun getur heimilað allt að 50% frávik frá lágmarkstíðni greininga sem tilgreind eru í töflu 6 fyrir mismunandi rannsóknaþætti í töflum 4 og 5 ef:

    1. mæligildi úr sýnum sem tekin eru a.m.k. í 2 ár í röð eru stöðug og verulega lægri en hámarksgildin;
    2. ekkert hefur komið í ljós sem líkur benda til að spilli gæðum neysluvatnsins.

4. gr.

Í stað heitisins "Hollustuverndar ríkisins" í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar og sama heitis hvarvetna annars staðar í reglugerðinni komi, í viðeigandi beygingarfalli: "Matvælastofnun".

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 28. janúar 2008.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.