Prentað þann 16. jan. 2025
143/1991
Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 562/1989, um virðisaukaskatt af eigin þjónustu og úttekt til eigin nota innan óskattskyldra fyrirtækja og stofnana.
1. gr.
Við 1. málsgr. 2. gr. bætist nýr tölul., er verði 6. tölul., svohljóðandi:
6. Öryggisvarsla, þ.e. eftirlit með verðmætum og starfsemi, utan venjulegs opnunartíma.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. málsgr. 3. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, til að öðlast gildi 1. maí 1991.
Fjármálaráðuneytið, 26. mars 1991.
F. h. r.
Snorri Olsen.
Guðrún Ásta Sigurðardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.