Prentað þann 19. des. 2025
137/2025
Reglugerð um efniviði og hluti úr endurunnu plasti, sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2022/1616 frá 15. september 2022, um efniviði og hluti úr endurunnu plasti, sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 282/2008. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 234 frá 25. október 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 21. nóvember 2024, bls. 434.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/351 frá 21. febrúar 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 10/2011 um efnivið og hluti úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli, um breytingu á reglugerð (ESB) 2022/1616 um efniviði og hluti úr endurunnu plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 282/2008 og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2023/2006 um góða framleiðsluhætti að því er varðar efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli að því er varðar endurunnið plast og önnur mál sem varða gæðaeftirlit og framleiðslu á efniviðum og hlutum úr plasti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 128 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 293.
2. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt nema annað sé ákvarðað samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.
3. gr.
Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum um matvæli, nr. 93/1995.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 396/2013 um (1.) breytingu á reglugerð nr. 568/2008 um góða framleiðsluhætti að því er varðar efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli og reglugerð nr. 466/2016 um (2.) breytingu á reglugerð nr. 568/2008 um góða framleiðsluhætti að því er varðar efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli.
Matvælaráðuneytinu, 15. janúar 2025.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Svava Pétursdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.