Fara beint í efnið

Prentað þann 27. des. 2024

Breytingareglugerð

74/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr. Innleiðing.

Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 83/2014 frá 29. janúar 2014 um breytingar á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2014 frá 27. júní 2014 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, bls. 510.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 37. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Ákvæði reglugerðar þessarar koma til framkvæmda 18. febrúar 2016, að undanskildum ákvæðum e‑liðar í ORO.FTL.205 í viðauka III við reglugerð (ESB) nr. 83/2014, sem skulu koma til framkvæmda 17. febrúar 2017.

Innanríkisráðuneytinu, 29. janúar 2016.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.