Prentað þann 13. apríl 2025
46/2004
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 541/2002 um endurgreiðslu slysatrygginga á nauðsynlegum kostnaði vegna sjúkrahjálpar.
1. gr.
Við 2. gr. bætist ný málsgrein er orðast svo:
Slysatryggingar skulu greiða að fullu kostnað við nauðsynlega læknishjálp hins slasaða vegna slyssins hjá sérfræðilæknum sem fellur til á tímabilinu 1. til 13. janúar 2004, að báðum dögum meðtöldum, samkvæmt samningi um sjúkratryggingar sem var í gildi í desember 2003.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga um almannatryggingar nr. 117/1993, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 22. janúar 2004.
Jón Kristjánsson.
Ragnheiður Haraldsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.