Prentað þann 19. nóv. 2024
Breytingareglugerð
31/2024
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 849/2023, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2023/2024 og almanaksárið 2024.
1. gr.
3. tl., Norsk-íslensk síld og 4. tl., Norðuríshafsþorskur, í töflu í 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Tegund | Leyfilegur heildarafli | Dregið frá heildarafla skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) | Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar |
3. Norsk-íslensk síld | 60.842 | 3.225 | 57.617 |
4. Norðuríshafsþorskur: | 4.074 | 216 | 3.858 |
Til úthlutunar innan efnahagslögsögu Noregs | 4.074 | 216 | 3.858 |
Til úthlutunar innan efnahagslögsögu Rússlands |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 18. janúar 2024.
Svandís Svavarsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.