Prentað þann 25. des. 2024
30/1998
Reglugerð fyrir Bjargráðasjóð.
I. KAFLI Sjóðurinn og varnarþing hans.
1. gr.
Bjargráðasjóður er sjálfstæð stofnun, sameign ríkisins, sveitarfélaganna og Bændasamtaka Íslands. Eignaraðilar bera ekki ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins umfram árleg, óafturkræf framlög sín til hans.
2. gr.
Heimili og varnarþing Bjargráðasjóðs er í Reykjavík.
II. KAFLI Stjórn Bjargráðasjóðs.
3. gr.
Félagsmálaráðherra skipar fimm manna stjórn Bjargráðasjóðs í lok þess árs sem kosið er til sveitarstjórna. Félagsmálaráðherra skipar formann stjórnar, en Samband íslenskra sveitarfélaga og Bændasamtök Íslands tilnefna hvort um sig tvo fulltrúa í stjórnina. Varamenn eru jafnmargir og valdir af sömu aðilum. Sé einhver stjórnarmanna forfallaður tekur varamaður hans sæti í stjórninni.
4. gr.
Stjórn Bjargráðasjóðs hefur á hendi stjórn sjóðsins og tekur ákvarðanir um afgreiðslu umsókna og styrkveitingar úr báðum deildum hans.
5. gr.
Stjórn Bjargráðasjóðs ræður framkvæmdastjóra og annað starfslið sjóðsins og ákveður kaup þess og kjör í samræmi við launakerfi opinberra starfsmanna.
Stjórn Bjargráðasjóðs er heimilt að semja við Lánasjóð sveitarfélaga, Samband íslenskra sveitarfélaga eða aðra stofnun sem henta þykir um sameiginlega framkvæmdastjórn, skrifstofuhald og rekstur sjóðsins. Fer þá um ráðningu og kjör starfsfólks eftir samstarfssamningi þeirra stofnana.
III. KAFLI Verksvið framkvæmdastjóra.
6. gr.
Framkvæmdastjóri ber í umboði stjórnarinnar ábyrgð á fjárreiðum, reikningshaldi og uppgjöri sjóðsins og annast það, svo og daglega afgreiðslu á vegum sjóðsins ásamt öðru starfsliði hans.
7. gr.
Framkvæmdastjóri kemur fram sem fyrirsvarsmaður sjóðsins. Framkvæmdastjóri boðar stjórnarfundi og undirbýr mál fyrir fundi.
Framkvæmdastjóri getur í samráði við stjórn sjóðsins falið öðru starfsfólki verkefni, meðal annars skv. 1. mgr. greinar þessarar, með erindisbréfi.
IV. KAFLI Tekjur sjóðsins og skipulag.
8. gr.
Árlegar tekjur Bjargráðasjóðs eru:
- Framlög sveitarfélaga, sem nema skulu 85,28 kr. fyrir hvern íbúa sveitarfélags miðað við 1. desember undanfarið ár. Fjárhæð þessi er miðuð við framfærsluvísitölu 172,1 stig frá 1. janúar 1995 og skal síðan breytast árlega miðað við vísitölu neysluverðs 1. janúar ár hvert.
- Tekjur af búnaðargjaldi skv. 6. gr. laga um búnaðargjald nr. 84/1997 og viðauka með þeim lögum.
- Framlag ríkissjóðs allt að 80 millj. kr. á ári eftir því sem nánar er kveðið á um í fjárlögum.
- Vextir af fé sjóðsins.
9. gr.
Bjargráðasjóður starfar í tveimur aðgreindum deildum er nefnast almenn deild og búnaðardeild. Tekjur sjóðsins skiptast þannig á milli deilda:
- Í almennu deild sjóðsins renna 75% af framlögum sveitarfélaga og jafnhá fjárhæð af framlagi ríkissjóðs, svo og vaxtatekjur sjóðsins.
- Í búnaðardeild renna allar tekjur af búnaðargjaldi, 25% af framlögum sveitarfélaga og sá hluti af framlagi ríkissjóðs sem ekki rennur til almennu deildar sjóðsins.
10. gr.
Framlög sveitarfélaga skulu greidd til Bjargráðasjóðs fyrir 1. desember ár hvert.
Framlög sveitarfélaganna innheimtir félagsmálaráðuneytið með því að draga þau frá úthlutun til þeirra úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Bjargráðasjóður annast innheimtu hjá þeim sveitarfélögum sem ekki fá greiðslur úr Jöfnunarsjóði.
Framlag ríkissjóðs greiðist með jöfnum mánaðarlegum greiðslum.
Fjármálaráðherra stendur skil á hlut Bjargráðasjóðs í búnaðargjaldi í samræmi við 6. gr. laga um búnaðargjald nr. 84/1997.
11. gr.
Bókhaldi almennu deildar og búnaðardeildar Bjargráðasjóðs skal halda aðgreindu. Rekstrarkostnaður sjóðsins greiðist úr almennu deild hans.
V. KAFLI Fjárhagsaðstoð.
12. gr.
Hlutverk almennu deildar sjóðsins er að veita einstaklingum, félögum og sveitarfélögum fjárhagsaðstoð til að bæta meiri háttar bein tjón af völdum náttúruhamfara, sbr. eftirfarandi:
- Á gjaldskyldum fasteignum samkvæmt skilgreiningu laga um tekjustofna sveitarfélaga, sbr. lög um Fasteignamat ríkisins, landsvæðum, götum og gangstéttum sveitarfélaga og girðingum, túnum og rafmagnslínum er tengjast landbúnaði.
- Á vélum, tækjum, heyi og áhöldum sem notuð eru við landbúnaðarframleiðslu og/eða við starfsemi sveitarfélaga.
- Á grasuppskeru hefðbundinna nytjatúna og vegna grasbrests af völdum óvenjulegra kulda, þurrka, óþurrka og kals.
Ekki verður veitt fjárhagsaðstoð vegna tjóna á stærri mannvirkjum, svo sem orku- og hafnamannvirkjum, sjóvarnagörðum, fiskeldismannvirkjum og skipasmíðastöðvum.
13. gr.
Hlutverk búnaðardeildar er að bæta meiri háttar tjón hjá einstaklingum og félögum vegna sjúkdóma, óvenjulegs veðurfars og slysa.
Eftirfarandi er bætt úr búnaðardeild sjóðsins:
- Tjón á búfé og afurðum búfjár.
- Uppskerutjón á garðávöxtum.
Stjórn sjóðsins er ennfremur heimilt að styrkja fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir tjón sem Bjargráðasjóði ber að bæta. Hámark fyrirbyggjandi styrkja er 10% af ráðstöfunarfé hvers árs.
14. gr.
Ekki verður veitt fjárhagsaðstoð vegna tjóns ef ásetningi eða gáleysi eiganda eða umsjónarmanns verður um kennt, eðlilegar varnir ekki við hafðar og ef staðsetning hluta er óeðlileg með tilliti til tjónahættu.
Ekki eru bætt tjón sem njóta almennrar tryggingaverndar eða almennt er tryggt fyrir innan búgreinar eða hægt er að fá bætt með öðrum hætti, sbr. ákvæði laga um Viðlagatryggingu Íslands.
15. gr.
Fjárhagsaðstoð beggja deilda sjóðsins er eingöngu fólgin í veitingu styrkja sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni í samræmi við fjárhag og stöðu sjóðsins.
Stjórn sjóðsins leggur mat á styrkhæfni tjóna, ákveður styrkhlutfall og eigin áhættu tjónþola í tjóni.
Styrkhlutfall og eigin áhættu er stjórn sjóðsins heimilt að ákveða mismunandi miðað við hvert tjónatímabil eða einstakt tjón eftir búgreinum og tegundum eigna og taka í því efni meðal annars mið af framlögum einstakra búgreina í sjóðinn, tekjuskiptingu sjóðsins og rekstraráhættu hverrar búgreinar.
Stjórn sjóðsins er heimilt að setja sér nánari vinnureglur um veitingu styrkja samkvæmt þessari grein.
16. gr.
Forsenda styrkveitinga úr búnaðardeild sjóðsins er að skil hafi verið gerð á búnaðargjaldi í samræmi við lög um búnaðargjald.
17. gr.
Stjórn Bjargráðasjóðs er heimilt að lána fé á milli deilda sjóðsins án vaxta, ef fé annarrar hvorrar deildar sjóðsins hrekkur eigi til að veita þá aðstoð sem nauðsyn krefur samkvæmt lögunum og að mati stjórnarinnar.
18. gr.
Stjórn Bjargráðasjóðs getur, ef um er að tefla almenn bótaskyld tjón í einu byggðarlagi eða fleirum, skipað nefnd til þess að rannsaka tjónin og gera tillögur til stjórnarinnar um aðstoð vegna þeirra. Kostnaður vegna slíkra nefndarstarfa greiðist úr þeirri deild sjóðsins sem veitir aðstoð vegna tjónanna.
VI. KAFLI Umsóknir.
19. gr.
Umsókn um aðstoð úr Bjargráðasjóði skal hafa borist sjóðnum innan eins árs frá því að tjón varð. Umsókn skal vera skrifleg og á eyðublaði frá sjóðnum þegar það á við.
Umsókn skulu fylgja svo glöggar skýrslur sem unnt er um tjónið. Jafnframt skulu fylgja umsókninni vottorð eftir því sem við á, svo sem héraðsráðunautar, dýralæknis, dómkvaddra matsmanna, oddvita eða hreppstjóra. Stjórn Bjargráðasjóðs getur krafist fyllri gagna frá umsækjanda eða öðrum þeim aðilum sem slíkar upplýsingar geta veitt ef ástæða þykir til.
Stjórn Bjargráðasjóðs getur frestað afgreiðslu eða synjað umsóknum um aðstoð ef ekki eru lögð fram þau gögn sem stjórnin krefst eða hún telur tjón ekki nægilega upplýst.
20. gr.
Umsóknir um bætur úr almennu deild sjóðsins skulu að jafnaði afgreiddar tvisvar á ári.
Umsóknir um bætur úr búnaðardeild sjóðsins skulu afgreiddar eigi sjaldnar en þrisvar á ári.
Tjónabætur úr báðum deildum sjóðsins skulu að jafnaði taka mið af árlegu ráðstöfunarfé þeirra á því ári sem umsókn berst.
Stjórn Bjargráðasjóðs er heimilt ef ástæða þykir til að víkja frá framangreindum viðmiðunum við sérstakar og óvenjulegar aðstæður, til dæmis að safna saman umsóknum til að meta heildartjón eða flýta afgreiðslu umsókna sem að mati stjórnarinnar þola ekki bið.
VII. KAFLI Eigið fé sjóðsins.
21. gr.
Fé Bjargráðasjóðs, sem ekki hefur verið ráðstafað samkvæmt reglugerð þessari, skal ávaxtað með sem tryggustum og hagkvæmustum hætti samkvæmt nánari ákvörðun stjórnarinnar.
22. gr.
Eigið fé Bjargráðasjóðs skal standa óskert svo sem kostur er. Vaxtatekjur án verðbóta skulu taldar til ráðstöfunartekna sjóðsins á ári hverju.
23. gr.
Við sérstakar og óvenjulegar aðstæður er stjórn sjóðsins heimilt að nota hluta af eigin fé sjóðsins til styrkveitinga.
Eigið fé almennu deildar sjóðsins má þó aldrei verða minna en þrefalt framlag sveitarfélaganna til deildarinnar (75% framlagsins) miðað við næsta almanaksár á undan.
Eigið fé búnaðardeildarinnar má á sama hátt ekki verða minna en sem nemur eins árs framlagi til sjóðsins af veltu búvöru og tengdrar þjónustu hjá búvöruframleiðendum, sbr. lög um búnaðargjald nr. 84/1997, miðað við næsta almanaksár á undan.
VIII. KAFLI Ársreikningar og endurskoðun.
24. gr.
Ársreikningar sjóðsins skulu fullgerðir fyrir febrúarlok ár hvert. Stjórn sjóðsins felur löggiltum endurskoðanda að endurskoða reikninga sjóðsins og skal endurskoðun að jafnaði lokið fyrir 30. apríl ár hvert.
Að endurskoðun lokinni skal birta reikninga sjóðsins í B-deild Stjórnartíðinda.
IX. KAFLI Gildistaka.
25. gr.
Reglugerð þessi sem samin er af stjórn Bjargráðasjóðs og staðfestist hér með samkvæmt 15. gr. laga um Bjargráðasjóð nr. 146/1995, sbr. lög nr. 126/1997, til þess að öðlast þegar gildi. Jafnframt er úr gildi felld reglugerð fyrir Bjargráðasjóð nr. 122/1994.
Félagsmálaráðuneytinu, 12. janúar 1998.
Páll Pétursson.
Húnbogi Þorsteinsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.