Prentað þann 21. apríl 2025
19/2008
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 810/2006 um ákvarðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um samhæfða evrópska staðla sem teknar hafa verið á grundvelli tilskipunar um öryggi vöru nr. 2001/95/EB.
1. gr.
Við 1. gr. bætist 3. tölul. sbr. eftirfarandi:
-
Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar nr. 2006/502/EB frá 11. maí 2006 - Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2007. Ákvörðunin felur tvennt í sér:
- Bann við markaðssetningu einnota kveikjara, sem ekki eru útbúnir barnalæsingu og uppfylla ekki staðalinn EN 13869:2002, Kveikjarar - Barnalæsingar fyrir kveikjara - Öryggiskröfur og prófunaraðferðir.
- Bann við markaðssetningu nýstárlegra kveikjara (e. novelty lighters), sem uppfylla ekki staðalinn EN 13869:2002, Kveikjarar - Barnalæsingar fyrir kveikjara - Öryggiskröfur og prófunaraðferðir. Sem dæmi um nýstárlega kveikjara má nefna kveikjara er hafa útlit leikfangabíla eða gsm-síma og bjóða þeirri hættu heim að börn sæki í þá, grunlaus um þá hættu er af þeim stafar.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Viðskiptaráðuneytinu, 15. janúar 2008.
Björgvin G. Sigurðsson.
Áslaug Árnadóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.