Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. jan. 2022

6/2022

Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar.

1. gr. Ákvörðun og markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við mennta- og barnamálaráðherra og vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, að takmarka skólastarf tímabundið eftir því sem hér greinir.

Markmið með reglugerð þessari er að tryggja að sem minnst röskun verði á skólastarfi vegna COVID-19 sjúkdómsins með ýtrustu sóttvarnarsjónarmið að leiðarljósi.

2. gr. Gildissvið.

Takmörkun á skólastarfi tekur gildi frá og með 13. janúar 2022 og gildir til og með 2. febrúar 2022.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkun skólastarfs eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á skólastarfi tekur til leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, framhaldsskóla, framhaldsfræðslu og háskóla, hvort sem um er að ræða opinbera eða einkarekna skóla. Þá tekur reglugerðin jafnframt til tengdrar starfsemi, svo sem skólabókasafna, frístundaheimila, skólabúða og félagsmiðstöðva, sem og til æskulýðs- og tómstundastarfs.

Í sameiginlegum umgangsrýmum innandyra á öllum skólastigum, svo sem við innganga, í anddyri og á göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun að því gefnu að starfsfólk noti andlitsgrímu. Þá er blöndun hópa heimil á öllum skólastigum og starfsfólki er heimilt að fara milli rýma.

Í mötuneytum á öllum skólastigum er hámarksfjöldi nemenda 50.

Um verklegt ökunám og flugnám og um íþróttastarf utan skólastarfs fer samkvæmt reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

3. gr. Leikskólar.

Leikskólum er heimilt að halda uppi skólastarfi í skólabyggingum með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks. Sé ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks skal það nota andlitsgrímur. Starfsfólki ber ekki skylda til að nota andlitsgrímur í samskiptum við leikskólabörn. Ekki skulu vera fleiri en 20 fullorðnir einstaklingar í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli rýma. Sömu reglur gilda um starfsfólk skólaþjónustu. Ekki skulu vera fleiri en 50 leikskólabörn í hverju rými innandyra, en fjöldatakmarkanir gilda ekki á útisvæðum leikskóla. Hvorki nálægðartakmarkanir né grímuskylda taka til barna á leikskólaaldri.

Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi leikskóla, svo sem leiksýningar og tónleikar, eru óheimilir fyrir aðra en nemendur og kennara.

Viðvera foreldra sem dvelja inni á leikskóla vegna aðlögunar skal skipulögð þannig að þeir þurfi ekki að nota hreinlætis- eða mataraðstöðu í byggingunni og skulu þeir gæta að minnst 2 metra nálægðartakmörkun jafnt sín á milli sem og gagnvart starfsfólki. Aðeins eitt foreldri fylgi barni í aðlögun og skal það vera sama foreldrið sem fylgir barninu allt aðlögunartímabilið. Foreldrum ber að nota andlitsgrímu þar sem ekki er unnt að viðhafa 2 metra nálægðartakmörkun.

Ákvæði þessarar greinar eiga einnig við um skipulagt æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri og er einum einstaklingi heimilt að fylgja barni í því starfi.

4. gr. Grunnskólar.

Grunnskólum er heimilt að halda uppi skólastarfi, þ.m.t. íþróttakennslu, í skólabyggingum með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks. Sé starfsfólki ekki unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun sín á milli og gagnvart nemendum skal starfsfólkið nota andlitsgrímur. Ekki skulu vera fleiri en 20 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli rýma. Sömu reglur gilda um starfsfólk skólaþjónustu og tónlistarskóla sem kemur inn í grunnskóla.

Nemendur eru undanþegnir grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 50 nemendur í hverju rými og skal leitast við að viðhafa 1 metra nálægðartakmörkun milli þeirra í skólastofum. Þrátt fyrir 2. málsl. gilda fjöldatakmarkanir ekki í skólaakstri. Fjöldatakmarkanir gilda ekki á útisvæðum en leitast skal við að takmarka fjölda nemenda á hverju útisvæði eins og kostur er, án þess að það komi niður á útiveru nemenda.

Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi grunnskóla, svo sem fyrirlestrar, upplestrarkeppnir o.fl., eru óheimilir fyrir aðra en nemendur og starfsfólk.

Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðartakmörkun, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu og kennslu nemenda í sérskólum, skulu kennarar nota andlitsgrímu, sbr. þó 5. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Ákvæði þessarar greinar eiga einnig við um frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, skólabúðir og skipulagt æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri.

5. gr. Tónlistarskólar.

Tónlistarskólum er heimilt að sinna kennslu með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Ekki skulu vera fleiri en 20 starfsmenn í hverju rými, þó er starfsmönnum heimilt að fara milli rýma. Ekki skulu vera fleiri en 50 nemendur í hverju rými. Um nálægðarmörk nemenda í tónlistarskóla fer eftir ákvæðum reglugerðarinnar á hverju skólastigi. Nemendur fæddir 2005 eða fyrr og starfsmenn skulu nota andlitsgrímur ef nálægðartakmörkunum verður ekki við komið, sé þess kostur.

Öll tónlistarkennsla barna á leik- og grunnskólaaldri er heimil með sömu takmörkunum og gildir um skólastarf þeirra.

Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi tónlistarskóla, svo sem tónleikar, eru óheimilir fyrir aðra en nemendur og kennara.

6. gr. Framhaldsskólar.

Skólastarf á framhaldsskólastigi, þ.m.t. íþróttakennsla, í lýðskóla, ungmennahúsum og framhaldsfræðslu er heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 2 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna fari aldrei yfir 50 í hverju rými, þ.m.t. í kennslu- og lesrými. Þó skulu ekki vera fleiri en 20 starfsmenn í hverju rými og er starfsmönnum heimilt að fara milli rýma. Sé ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð skulu starfsmenn og nemendur nota andlitsgrímur, þó er ekki grímuskylda fyrir nemendur í íþróttakennslu. Þrátt fyrir 3. málsl. skal leitast við að viðhafa 1 metra milli nemenda í kennslu- og lesrýmum en þeir skulu þá nota andlitsgrímu.

Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðartakmörkun, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu og kennslu nemenda á starfsbrautum, skulu nemendur og kennarar nota andlitsgrímu, sbr. þó 5. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Viðburðir sem ekki teljast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skólabyggingum.

Um viðburði tengda starfi eða félagslífi í framhaldsskóla fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Ákvæði þetta kemur ekki í veg fyrir að nemendur geti dvalið á heimavist.

7. gr. Háskólar.

Í öllum byggingum háskóla er skólastarf heimilt að því tilskildu að nemendur og starfsfólk geti haft minnst 2 metra fjarlægð sín á milli og fjöldi nemenda og starfsmanna í hverju kennslu- eða lesrými fari ekki yfir 50. Þó skulu ekki vera fleiri en 20 starfsmenn í hverju rými og er starfsmönnum heimilt að fara milli rýma. Þrátt fyrir 1. málsl. skal leitast við að viðhafa 1 metra milli nemenda í kennslu- og lesrýmum en þeir skulu þá nota andlitsgrímu. Sé starfsmönnum ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð skulu þeir nota andlitsgrímur.

Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðartakmörkun, svo sem í verklegri kennslu, listkennslu og klínísku námi, er skólastarf heimilt að gættum sóttvörnum og með því skilyrði að nemendur og kennarar noti andlitsgrímu.

Aðrir viðburðir sem ekki teljast til kennslu eða náms skulu ekki fara fram í skólabyggingum.

Ákvæði þetta kemur ekki í veg fyrir að nemendur geti dvalið á heimavist.

8. gr. Sóttvarnaráðstafanir.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa skólabyggingar eftir hvern dag. Þrífa skal eins oft og unnt er algenga snertifleti og tryggja loftun reglulega í rýmum.

Lögð skal áhersla á einstaklingsbundnar sóttvarnir og að hafa greitt aðgengi að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og andlitsgrímum þar sem við á.

9. gr. Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun skólastarfs ef ekki er talin hætta á að slíkt fari gegn markmiðum opinberra sóttvarnaráðstafana. Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarnalækni, mennta- og barnamálaráðherra, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra eða félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra um beiðni um undanþágu.

10. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.