Einstaklingar sem nota notendaleyfisskyldar plöntuverndarvörur og/eða útrýmingarefni skulu sækja um notendaleyfi til Umhverfis- og orkustofnunar.
Skilyrði fyrir veitingu notendaleyfis eru:
Ljúka námi eða námskeiði um meðferð notendaleyfisskyldra plöntuverndarvara og/eða útrýmingarefna.
Aðstaða og búnaður sem nauðsynlegur er til að tryggja örugga og rétta meðferð notendaleyfisskyldra vara sem Vinnueftirlitið hefur viðurkennt.
Umsækjandi skal vera eldri en 18 ára.
Notendaleyfishafi skal ávallt hafa skírteini meðferðis við kaup og meðferð á þeim vörum sem leyfið nær til.
Gjaldskrá
Fyrsta útgáfa notendaleyfis 33.600 kr.
Fyrsta útgáfa notendaleyfis ef þegar handhafi annars gildissviðs 16.800 kr.
Endurnýjun notendaleyfis 22.400 kr
Þjónustuaðili
Umhverfis- og orkustofnunÁbyrgðaraðili
Umhverfis- og orkustofnun