Fara beint í efnið

Leiðbeiningar við útfyllingu á útflutningsskýrslu

Þjónustuaðili:

Útflutningsskýrsla er lögboðið skjal við sérhvern útflutning í atvinnuskyni. Hægt er að skila henni rafrænt eða á pappír, eyðublað E-2.1

Ef þú ert með heimild til rafrænnar tollafgreiðslu sendir þú skýrsluna rafrænt beint til Skattsins. Ef ekki, skilarðu útfylltu E-2.1 eyðublaði við tollstöð.

Reitir sem ekki koma fram í leiðbeiningum eru ekki notaðir við útflutning.

    Sérleiðbeiningar vegna sjávarafurða

    Útflutningur á sjáfarafurðum krefst heilbrigðisvottorðs frá Matvælastofnun og skráningar á leyfisnúmeri framleiðanda í útflutningsskýrslu. Þetta þarf að hafa til staðar áður en vara er send frá Íslandi.

    Matvælastofnun (MAST) ber ábyrgð á heilbrigðiskröfum og vottorðum vegna sjávarafurða. Fiskistofa ber ábyrgð á rekjanleika og leyfisnúmerum. Skatturinn sér um tollafgreiðslu.

    Skjöl sem eru nauðsynleg

    • Heilbrigðisvottorð frá Matvælastofnun (MAST)

      Krafist við útflutning til flestra landa, sérstaklega ESB, Bretlands og Bandaríkjanna. Sótt um hjá MAST áður en sending fer.

    • Útflutningsskýrsla (E-2)

      Skilað til Skattsins með leyfisnúmeri framleiðanda í reit 44. Sjá nánar hér að neðan.

    • Vörureikningur og farmskjöl

      Staðlað skjalaferli eins og við annan útflutning.

    Sumir markaðir krefjast viðbótarskjala, til dæmis fiskveiðivottorð (catch certificate) fyrir ESB sem sannar að fiskurinn hafi ekki verið veiddur í andstöðu við alþjóðlegar reglur. MAST veitir leiðbeiningar um kröfur á hverjum markaði.

    Leyfisnúmer framleiðanda í reit 44

    Við útflutning á sjávarafurðum þarf að skrá leyfisnúmer framleiðanda í reit 44 á útflutningsskýrslunni. Þetta er til þess að hægt sé að rekja afurðina til síðasta vinnsluaðila á Íslandi.

    Hvernig það er skráð fer eftir tegund vöru og hvernig hún hefur verið meðhöndluð:

    Undanþágur - þegar leyfisnúmer er ekki krafist

    Í eftirfarandi tilvikum er hægt að sækja um undanþágu hjá Fiskistofu eða nota sérstakt tollskrárnúmer:

    Fiskmarkaður
    Ef kældur, óunninn afli í tollflokki 0302 er keyptur á fiskmarkaði af mörgum skipum. Hægt að sækja um undanþágu hjá Fiskistofu.

    Innflutt vara
    Ef sjávarafurð er innflutt og ekki hægt að rekja til íslensks framleiðanda. Undanþága frá Fiskistofu

    Gjafasendingar
    Minniháttar gjafasendingar með tollskrárnúmer 9804.1000 þurfa ekki leyfisnúmer

    Erlendir veiðimenn
    Afli erlendra veiðimanna sem láta vinna fisk á Íslandi og senda til eigenda sinna. Tollskrárnúmer 9802.2000, engin krafa um leyfisnúmer. Þetta á við um minniháttar sendingar.

    Frekari upplýsingar hjá Fiskistofu