Fara beint í efnið

LANIS Skimun fyrir tal- og málþroska þriggja ára barna

2026 © Jóhanna Thelma Einarsdóttir, Þóra Másdóttir, Þóra Sæunn Úlfsdóttir, Signý Gunnarsdóttir og Patrekur Gestsson

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og námsleið í talmeinafræði við Háskóla Íslands

Þjónustuaðili: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Öll réttindi áskilin

1. útgáfa 2026

    Íhlutun í kjölfar LANIS

    Eftir útfyllingu á LANIS þarfa ð fara yfir niðurstöður með foreldrum. Viðmið úr töflum LANIS hjálpa til við að sýna stöðu barnsins miðað við jafnaldra. Mikilvægt er að leikskólakennarar miðli niðurstöðum skimunar til foreldra á skýran og uppbyggilegan hátt. Foreldrar þurfa að fá upplýsingar sem gera þeim kleift að skilja stöðu barnsins og hvernig þeir geta stutt við málþroska þess í daglegu lífi. Ef foreldrar og kennarar eru ósammála skal hafa í huga að foreldrar telja yfirleitt að barnið sé með betri fræni í tungumálinu en leikskólarkennarar. Í samræðum við foreldra er best að einbeita sér að því sem foreldrar og leikskólakennarar eru sammála um og skoða jafnframt hvernig hægt er að styðja við barnið.