Greiðsluaðlögun - úrræði við skuldavanda
Ef aðstæður breytast
Heimilt er að óska eftir breytingu á greiðsluaðlögunarsamningi á tímabili greiðsluaðlögunar, ef upp koma sérstakar eða ófyrirsjáanlegar aðstæður sem veikja getu þína til að standa við samninginn eða sem leiða til þess að breyta þurfi að öðru leyti skilmálum samningsins.
Mikilvægt er að beiðni um breytingu berist UMS áður en tímabil greiðsluaðlögunar er á enda.
UMS leggur mat á hvort skilyrði séu uppfyllt fyrir breytingu samnings.
Möguleiki er á að fá gjaldfrest á allt að þremur gjalddögum samkvæmt samningi án þess að breytingin sé borin undir kröfuhafa
Sé þörf á annars konar breytingu, s.s. lengri gjaldfrest eða breytingu á skilmálum samnings, er breytingin borin undir kröfuhafa sem lýstu kröfu
Til baka: Eignir þínar
Áfram: Ef umsókn er hafnað

Þjónustuaðili
Umboðsmaður skuldara