Í kjölfar hörmulegs slyss við Hálslón vill Heilbrigðisstofnun Austurlands koma eftirfarandi á framfæri. Samfélagið á Austurlandi er í sameiningu að takast á við mikið áfall og vinna úr því. Með samfélögunum koma að áfallaviðbragðinu margir aðilar svo sem prestar, HSA, Rauði Krossinn, sveitarfélögin og aðrir sérfræðingar.