Fara beint í efnið

5. júní 2026

Yfirlit yfir notkun á rafvarnarvopni hjá lögreglu fyrir fyrsta ársfjórðung 2026

Ríkislögreglustjóri hefur birt nýja ársfjórðungsskýrslu yfir notkun á rafvarnarvopni hjá lögreglu.

Embættið hefur gefið út ársfjórðungsskýrslur um notkun tækisins frá því að þau voru tekin í notkun sem valdbeitingartæki hjá lögreglu í september 2024. Skýrslan sýnir heildarnotkun lögreglu á rafvarnarvopnum frá upphafi.

Vopnin eru á sama stigi í valdbeitingarstiganum og kylfa og varnarúði og gefa lögreglu aukna möguleika á að velja þann varnarbúnað sem hæfir hverju verkefni. Með því er leitast við að auka öryggi almennings og lögreglu.

Skýrsluna má finna hér.

Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var rafvarnarvopn dregið úr slíðri eða ógnað með tækinu í 30 málum og í 5 málum var því beitt. Er þetta mesta notkun tækisins á einum ársfjórðungi frá því að það var tekið til notkunar en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var vopninu beitt næst oftast eða fjórum sinnum við handtöku. Þegar skoðuð eru útköll sérsveitar og alvarleg ofbeldisbrot í janúar til mars á þessu ári má sjá að þau voru svipuð að fjölda og yfir sama tímabil í fyrra.

Of snemmt er að segja til um hvort tilvikum þar sem rafvarnarvopni er beitt fari fjölgandi þar sem málin eru fá. Sem dæmi var rafvarnarvopni aldrei beitt á síðasta ársfjórðungi síðasta árs en í fjórum málum ársfjórðunginn á undan. Ríkislögreglustjóri mun halda áfram að birta ársfjórðungs tölur um valdbeitingu með rafvarnarvopni.