Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. janúar 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Yfir 16 þúsund hraðakstursbrot skráð með stafrænum hraðamyndavélum árið 2008

Sjö stafrænar hraðamyndavélar voru teknar í notkun á síðasta ári, tvær í Fáskrúðsfjarðargöngum, ein í Hvalfjarðargöngum og fjórar á Reykjanesi. Samtals eru stafrænar hraðamyndavélar á Íslandi orðnar níu en þær fyrstu voru teknar í notkun í júlí 2007 í Hvalfjarðarsveit.

Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og fækka umferðarslysum. Umferðaröryggisáætlun er hluti samgönguáætlunar og vinna samgönguráðuneytið, ríkislögreglustjóri, Umferðarstofa og Vegagerðin að uppsetningu hraðamyndavélanna. Áætlað er að fjölga hraðamyndavélunum í 16 á næstu árum.

Með tilkomu stafrænna hraðamyndavéla hefur skráðum hraðakstursbrotum fjölgað til muna. Um 40% allra hraðakstursbrota sem skráð voru í málaskrá lögreglunnar árið 2008 voru vegna nýtilkominna hraðamyndavéla. Á síðasta ári voru skráð hraðaksturbrot á Íslandi um 39 þúsund þar af voru um 16 þúsund með stafrænum hraðamyndavélum.

Nánari upplýsingar um sjálfvirkt hraðaeftirlit fyrir árið 2008 má finna hér.