Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. maí 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Vopnamál á Akureyri

Laust eftir klukkan hálf sex í morgun var lögreglan á Norðurlandi eystra kölluð til vegna tilkynningar um heimilisofbeldi í húsi á Akureyri. Tilkynnandi sem var kominn út úr húsinu skýrði frá því að meintur gerandi hótaði að beita skotvopni. Í ljósi þessara upplýsinga lokaði lögreglan nærliggjandi götum og vopnuðust vakthafandi lögreglumenn. Gerðar voru viðeigandi ráðstafanir og Sérsveit Ríkislögreglustjóra kölluð út. Skömmu eftir þetta kom meintur gerandi vopnlaus út úr íbúðinni og var hann þá handtekinn. Við leit í íbúðinni fundust tvær haglabyssur og nokkurt magn skotfæra. Viðkomandi sem var undir áhrifum áfengis var vistaður í fangageymslu og verður yfirheyrður seinna í dag.