13. mars 2016
13. mars 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Vopnamál á Akureyri
Fréttatilkynning frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra
Um kl. 1:30 fékk lögreglan á Norðurlandi eystra á Akureyri tilkynningu í gegnum Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjóra frá íbúa fjölbýlishús í Naustahverfi um að heyrst hefði í skothvellum frá nærliggjandi íbúð.
Lögreglan ásamt sérsveitarmönnum staðsettum á Akureyri fóru þegar á staðinn og gerðar voru ráðstafanir til að fá aðstoð frá sérsveit ríkislögreglustjóra og tryggja vettvang. Búið er að loka nærliggjandi götum og hafa samband við íbúa sem næst búa.
Á þessari stundu er beðið frekari liðsauka frá sérsveit Ríkislögreglustjóra.
Ekki er unnt að gefa upp frekari upplýsingar að svo stöddu.