Fara beint í efnið

21. október 2026

Viltu slást í hópinn?

Táknmálstúlkar gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélaginu. Þeir greiða fyrir aðgengi fólks að samskiptum milli tveggja jafnrétthárra mála á Íslandi, íslensku og íslensku táknmáli.

Samskiptamiðstöð auglýsir tvær lausar stöður táknmálstúlka, annars vegar ótímabundna stöðu og hins vegar tímabundna stöðu.

Þá óskar stofnunin eftir táknmálstúlkum á skrá fyrir afmörkuð, tilfallandi verkefni á sviði táknmálstúlkunar.

Viljir þú slást í okkar góða starfsmannahóp bendum við á auglýsingar á Starfatorgi.

Táknmálstúlkur - ótímabundin ráðning

Táknmálstúlkur – tímabundin ráðning

Viltu vera á skrá? – túlkaþjónusta