Fara beint í efnið

20. október 2026

Viljayfirlýsing um samstarf við Ríkisskjalasafn Úkraínu

Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður, og Anatolii Khromov, forstöðumaður Ríkisskjalasafns Úkraínu, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf stofnananna. Undirritunin fór fram í Dyflinni á Írlandi, þar sem fundur European Archives Group (EAG) fer fram.

Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður, Anatolii Khromov, forstöðumaður Ríkisskjalasafns Úkraínu, og Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður

Í viljayfirlýsingunni kemur meðal annars fram vilji til að efla fagleg tengsl og samstarf stofnananna, meðal annars með því að skiptast á afritum skjala sem varðveitt eru í skjalasöfnum landanna og varða sögu þeirra, skipuleggja starfsþjálfun og sérfræðingaskipti og standa sameiginlega að sýningum, útgáfuverkefnum og vísinda- og fagráðstefnum. Lögð er áhersla á mikilvægi aðgangs almennings að skjalaupplýsingum og á varðveislu sameiginlegs sögulegs menningararfs.

Samkomulagið gildir í fimm ár og framlengist sjálfkrafa um fimm ár í senn nema annað verði ákveðið. Með samkomulaginu er lagður grunnur að auknu alþjóðlegu samstarfi á sviði skjalavörslu og nýjum tækifærum til rannsókna og miðlunar sögulegra heimilda í þágu fræðasamfélags og almennings í báðum löndum.

Ríkisskjalasafn Úkraínu og Þjóðskjalasafn undirrita samkomulag

Anatolii Khromov, forstöðumaður Ríkisskjalasafns Úkraínu, og Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður