24. apríl 2026
24. apríl 2026
Viðmið um framkvæmd kosningaeftirlits á Íslandi
Landskjörstjórn hefur gefið út viðmið um framkvæmd kosningaeftirlits á Íslandi.

Samkvæmt 138. gr. kosningalaga nr. 112/2021 geta innlendir og erlendir kosningaeftirlitsmenn frá stofnunum eða samtökum fengið heimild landskjörstjórnar til þess að fylgjast með framkvæmd kosninga.
Í viðmiðunum er fjallað um kröfur sem gerðar eru til stofnana eða samtaka til að sinna kosningaeftirliti, umsóknir um kosningaeftirlit og framkvæmd þess. Viðmiðin hafa einnig verið gefin út á ensku.