Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. desember 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Viðbúnaðarástandi aflétt í Árnessýslu

Almannavarnarnefndir í Árnessýslu komu saman til fundar kl. 10:00 í morgun. Nú er mikið farið að sjatna í ám og flestir vegir að verða færir. Vegagerð vinnur að viðgerð á þeim skemmdurm sem orðið hafa og standa vonir til að þeim verði að mestu lokið í dag. Vatnsrennsli í Ölfusá við Selfoss er komið niður fyrir 2000 rúmmetra á sekúndu. Jarðvatn flæddi inn í 4 hús á Selfossi en sniðræsi kom í veg fyrir að vatn flæddi úr skolpræsum inn í kjallara.

Viðbúnaðarástandi er aflétt og þakka nefndirnar viðbragðsaðilum, björgunarsveitum, starfsmönnum áhaldahúsa, slökkviliðum og lögreglu óeigingjarnt starf við björgunarstörf á meðan flóðaástandið varði.

Almannavarnarnefndir munu koma saman í lok janúar til að fara yfir gögn um flóðin og þær aðgerðir sem farið var út í vegna þeirra.