Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. febrúar 2026

Viðbragðsáætlun vegna flugverndar virkjuð

Seinnipartinn barst tilkynning um grunsamlegan hlut á athafnasvæði flugverndar á Keflavíkurflugvelli. Við nánari skoðun reyndist ekki stafa hætta af umræddum hlut sem var merktur sem farangur.

Eigandi farangursins var handtekinn um borð flugvélar en hann var á leiðinni úr landi. Viðbragðsáætlun vegna flugverndar var virkjuð tímabundið til að tryggja öryggi starfsfólks og farþega. Málsatvik eru í rannsókn.