8. október 2025
8. október 2025
Þessi frétt er meira en árs gömul
Við leitum að rekstrarstjóra upplýsingatækni
Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar nýtt starf rekstrarstjóra upplýsingatækni. Leitað er að drífandi einstaklingi í spennandi starf hjá öflugri menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera.

Um 50 manns starfa hjá Þjóðskjalasafni. Um þessar mundir standa yfir miklar breytingar í starfseminni og því um spennandi tækifæri að ræða fyrir kraftmikinn aðila.
Starfshlutfall er 100% og umsóknarfrestur er til og með 20. október 2025.
Rekstrarstjóri upplýsingatækni er hluti af öflugu teymi á skrifstofu rekstrar. Undir skrifstofuna falla fjármál, mannauðsmál, gæðamál, upplýsingatækni, upplýsingaöryggi, skjalamál, húsnæðismál og öryggismál.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstur á miðlurum og gagnagrunnum (kerfisstjórn)
Rekstur útstöðva og annars notendabúnaðar
Rekstur hugbúnaðarkerfa í samstarfi við fageiningar og birgja
Eftirfylgni með uppfærslum á stýrikerfi og hugbúnaði frá þriðja aðila
Uppsetning á vélbúnaði og hugbúnaði
Tæknilegur stuðningur, notendaþjónusta og fræðsla fyrir starfsfólk
Samskipti við birgja í upplýsingatækni
Verkefnastýring verkefna í upplýsingatækni
Vinna við stöðugar úrbætur á sviði upplýsingaöryggis
Frekari upplýsingar um starfið, hæfniskröfur og umsókn má finna á Starfatorgi ríkisins.