Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. júní 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Verndaðu heimilið gegn innbroti

Svokallaður Focus Day var á dagskrá í fjölmörgum löndum í síðustu viku, en að honum komu m.a. Evrópusambandið og Europol. Að þessu sinni voru afbrotavarnir áfram í brennidepli, en sjónum var beint að því hvernig megi koma í veg fyrir innbrot á heimili. Lögreglan hefur ítrekað nefnt ýmsar leiðir í þeim efnum, en í meðfylgjandi myndbandi er mikilvægi þess að hafa traustar hurðalæsingar, útiljós með hreyfiskynjara, traustar gluggalæsingar og inniljós með tímastillir haldið á lofti.

https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2023/06/FOCUS-DAY-2023.mp4