19. júní 2024
19. júní 2024
Þessi frétt er meira en árs gömul
Verndaðu heimilið gegn innbroti
Svokallaður Focus Day er á dagskrá í fjölmörgum löndum í dag, en að honum koma m.a. Evrópusambandið og Europol. Að þessu sinni eru afbrotavarnir áfram í brennidepli, en sjónum er beint að því hvernig megi koma í veg fyrir innbrot á heimili. Lögreglan hefur ítrekað nefnt ýmsar leiðir í þeim efnum, en á meðfylgjandi mynd er mikilvægi þess að hafa traustar hurðalæsingar, útiljós með hreyfiskynjara, traustar gluggalæsingar og inniljós með tímastillir haldið á lofti.