Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. júlí 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Verndaðu heimilið gegn innbroti

Lögreglan minnir aftur á skilaboð sem birt voru í síðasta mánuði á svokölluðum Focus Day, sem var á dagskrá í fjölmörgum löndum 21. júní sl. Að þessu sinni eru afbrotavarnir í brennidepli, en sjónum er beint að því hvernig megi koma í veg fyrir innbrot á heimili. Lögreglan hefur ítrekað nefnt ýmsar leiðir í þeim efnum, en í meðfylgjandi myndbandi er mikilvægi þess að hafa traustar hurðalæsingar, útiljós með hreyfiskynjara, traustar gluggalæsingar og inniljós með tímastillir haldið á lofti. Að Focus Day koma m.a. Evrópusambandið og Europol.

https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2023/06/FOCUS-DAY-2023.mp4