Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. júní 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Verndaðu heimilið gegn innbroti

Svokallaður Focus Day er á dagskrá í fjölmörgum löndum í dag, en að honum koma m.a. Evrópusambandið og Europol. Að þessu sinni eru afbrotavarnir í brennidepli, en sjónum er beint að því hvernig megi koma í veg fyrir innbrot á heimili. Lögreglan hefur ítrekað nefnt ýmsar leiðir í þeim efnum, en í meðfylgjandi myndbandi er mikilvægi þess að hafa traustar hurðalæsingar, útiljós með hreyfiskynjara, traustar gluggalæsingar og inniljós með tímastillir haldið á lofti.

https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2023/06/FOCUS-DAY-2023.mp4