Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. desember 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Verðmætum stolið úr yfirhöfnum

Töluvert er um að verðmætum sé stolið úr yfirhöfnum fólks en lögreglan hefur fengið margar slíkar tilkynningar að undanförnu. Sérstaklega á þetta við um verðmæti sem hafa verið skilin eftir í yfirhöfnum í fatahengjum samkomustaða, t.d. á hótelum og annars staðar þar sem salir eru leigðir út fyrir samkvæmi. Einnig hefur verðmætum verið stolið með sama hætti úr yfirhöfnum í kirkjum. Lögreglan biður fólk að hafa þetta hugfast og skilja ekki veski eða önnur verðmæti eftir í yfirhöfnum.

Lögreglan varar líka eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum. Sé slíkt óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn. Talsvert er um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu en þjófum er ekkert heilagt og þeir stela jafnvel jólagjöfum ef því er að skipta.Sömuleiðis er rétt að benda á mikilvægi þess að skilja bíla frekar eftir á upplýstum bílastæðum, ef þess er nokkur kostur. Þjófum finnst nefnilega fátt betra en að athafna sig í myrkrinu þar sem ekki sést til þeirra.