Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. apríl 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Vélsleðaslys við Strútsöldur

Laust fyrir kl.15:00 í dag fékk lögreglan á Hvolsvelli tilkynningu um vélsleðaslys norðaustan við Strútsöldur, norðan Mýrdalsjökuls. Vélsleðamaður sem þar var á ferð ásamt öðrum vélsleðamönum mun hafa farið fram af hengju á vélsleða sínum og fallið u.þ.b. fjóra metra að talið er. Vélsleðamaðurinn er ekki talinn alvarlega slasaður en hann kvartaði yfir eymslum í baki. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út sem og björgunarsveitir úr Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslum. Þyrlan komst á staðinn en aðstæður voru erfiðar á vettvnagi m.a. vegna þröngs gils þar sem slysið gerðist. Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti með þann slasaða við Landspítalann í Fossvogi um kl.18:00.

Björgunarsveitir í Rangárvallasýslu frá Hellu, Hvolsvelli og Landeyjum eru þessa stundina í björgunarleiðangri vestarlega á Mýrdalsjökli þar sem jeppabifreið hefur lent ofan í sprungu en það gerðist fyrr í dag. Engin meiðsl eru á fólki þessu tengt.