15. mars 2026
15. mars 2026
Vel heppnuð Starfamessa
Það var sannarlega líf og fjör á Starfamessu 2026 sem haldin var í Háskólanum á Akureyri í gær. Þar gafst nemendum í 9. og 10. bekk grunnskóla á svæðinu kostur á því að kynna sér störf mismunandi starfsstétta og þá færni eða menntun sem þarf til að vinna starfið.

Það voru góðir fulltrúar SAk sem tóku á móti hressum nemendum. Að þessu sinni kynntu fulltrúar SAk ýmis fjölbreytt störf á sjúkrahúsinu:
Geislafræðingar
Sjúkraþjálfarar
Læknar
Lífeindafræðingar
Meinafræðingar
Sjúkraflutningar
Talmeinafræðingar
Sjúkraliðar
Iðjuþjálfar
Mannauðsráðgjafar
Hjúkrunarfræðingar
Ljósmæður
Þá var meðferðarhundurinn Atlas einnig með í för.
Við þökkum þeim fjölmörgu sem gáfu sér tíma til að kynna sér störf á SAk, kærlega fyrir komuna.