Fara beint í efnið

11. október 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Vel heppnuð netöryggisráðstefna Fjarskiptastofu 2024

Október er alþjóðlegur netöryggismánuður og af því tilefni bauð Fjarskiptastofa til ráðstefnu um netöryggismál á Hilton Nordica þann 8. október. Áherslur ráðstefnunnar í ár voru aukin ábyrgð stjórnenda og mikilvægi öryggis birgjakeðjunnar í ljósi NIS2.

Hátt í 300 manns sátu ráðstefnuna og hlýddu á fjölbreytt erindi 9 fyrirlesara, innlendra sem erlendra.

Á vef Fjarskiptastofu má sjá glærur frá erindum ásamt svörum við þeim spurningum sem varpað var fram úr salnum á meðan á ráðstefnunni stóð.

Fjarskiptastofa þakkar öllum sem sáu sér fært að mæta og við hlökkum til að sjá sem flesta að ári.

Þó nokkur umfjöllun var á fréttamiðlum um erindi fyrirlesara á ráðstefnunni og má sjá nokkur dæmi hér að neðan.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/10/08/stela_upplysingum_og_valda_tjoni/

https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/tiufrettir/30763/aga0sa/nyjungar-i-netoryggismalum

https://www.visir.is/g/20242631907d/ekkert-nema-styrkleikamerki-ad-birta-oryggisveikleika

https://www.visir.is/g/20242631975d/mikill-fjoldi-fyrir-taekja-med-o-full-naegjandi-netvarnir