Fara beint í efnið

21. febrúar 2024

Vel heppnaður Nýsköpunar- og vísindadagur

Nýsköpunar- og vísindadagur

Aðalauglýsing instagram post (3)

Þann 20. febrúar var haldinn Nýsköpunar- og vísindadagur HSU í fyrsta sinn.

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra opnaði daginn og fagnaði framtaki Heilbrigðisstofnunar Suðurlands að standa fyrir degi sem þessum. Þökkum honum fyrir komuna.

Alls voru flutt eftirfarandi níu erindi um nýsköpunarverkefni sem hafa nýlega verið innleidd eða eru í innleiðingu á stofnuninni:

  1. Leviosa: Nýtt sjúkraskrárkerfi

  2. Dignio: Fjarheilbrigðisþjónusta

  3. Nýtt verklag á HSU: Endurbætt ferli vegna móttöku þolenda ofbeldis

  4. Heimaspítali

  5. Krabbameinslækningar á Suðurlandi

  6. Gervigreind í myndgreiningu

  7. Slag innan tímamarka

  8. Geðheilsuvernd á meðgöngu

  9. Heilsa og næring barna

Langflest erindin voru haldin af starfsfólki HSU og öll til fyrirmyndar.

Heilbrigðisstofunun Suðurlands er stöðugt að leita nýrra leiða til að þjóna samfélaginu og leggur ríka áherslu á rannsóknir og þróun í nýsköpun til að efla gæði þjónustunnar.

Starfsfólk stofnunarinnar býr yfir ótrúlegri orku sem er lykillinn í að ná árangri á þessari vegferð en það hefur unnið að fjölda spennandi verkefna sem voru kynnt í gær.

Alls sóttu um 200 manns viðburðinn og þökkum við öllum kærlega fyrir sem sáu sér fært að taka þátt í þessum degi með okkur.

Willum þór Þórsson2
Áskoranir og tækifæri
Gestir
Gestir3
Díana Óskarsd.2
Björk Steindórsdóttir og Helga Lind Pálsdóttir3
Anna Margrét Magnúsdóttir og Anna Björk Ólafsdóttir
Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir
Guðný Stella Guðnadóttir2
Matthías Leifsson2
image00011
image00004
image00006
image00003
Gestir
image00001
image00002
image00008