Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. ágúst 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Vekjum athygli á gulri veðurviðvörun – fyrsta haustlægðin – forvarnir af hinu góða

Veðurstofa Íslands hefur sett á gula viðvörun vegna hvassviðris og töluverðrar rigningar að kvöldi föstudags og fram á laugardag. Vegna þessa er skynsamlegt að fólk hugi að því í tíma að festa niður lausamuni svosem trampolín og annað sem er þekkt fyrir að fara af stað í fyrstu veðrum haustsins. Byggingaverktakar eru hvattir til að tryggja byggingarefni og annað á byggingasvæðum svo ekki sé hætta á tjóni á þeim eða af völdum þess. Á þessum sama tíma verður varasamt að vera á ferð á Suðurlandi með hjólhýsi og á húsbílum sem taka á sig mikinn vind gangi spár eftir. Einnig má búast við vatnavöxtum í ám og lækjum eftir því sem úrkoman skilar sér.

Við hvetjum fólk til að fylgjast með veðurspám á vedur.is og/eða blika.is