12. júní 2023
12. júní 2023
Veiðidagur á strandveiðum
Á strandveiðum er heimilt að stunda strandveiðar í 12 veiðidaga innan hvers mánaðar í maí, júní, júlí og ágúst, á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.
Ein veiðiferð er heimil á dag, sem stendur ekki lengur en 14 klst. Miðað er við þann tíma er skip lætur úr höfn til veiða til þess tíma er það kemur til hafnar aftur til löndunar.
Til þess að veiðiferð telist vera innan dags þarf skip að leggja úr höfn til veiða á sama degi og það kemur til hafnar aftur til löndunar, þ.e. innan sama sólarhrings.