20. júní 2024
20. júní 2024
Veiði á Pollinum við Akureyri
Af gefnu tilefni vill Fiskistofa benda á að Pollurinn við Akureyri er á ósasvæði Eyjafjarðarár.
Veiði laxfiska á Pollinum við Akureyri er því samkvæmt ósamati innan umdæmis Veiðifélags Eyjafjarðarár. Veiði er því háð leyfi veiðifélagsins og þeim reglum sem veiðifélagið setur um veiðina í nýtingaráætlun.
Allar upplýsingar um veiðileyfi fyrir laxfiska í Pollinum frá landi má nálgast hjá Veiðifélagi Eyjafjarðarár.
Athugið að:
Reglur Veiðifélags Eyjafjarðarár heimila ekki veiði á göngusilungi úr báti á Pollinum.
Veiðifélag Eyjafjarðarár gerir þá kröfur til veiðimanna í þeirra umdæmi að sleppa skuli allri bleikju sem veiðist.
Þessar aðgerðir eru taldar nauðsynlegar með tilliti til stöðu bleikjustofns árinnar og í samræmi við tilmæli í umsögn Hafrannsóknastofnunar vegna fram lagðrar nýtingaráætlunar Veiðifélags Eyjafjarðarár fyrir sjóbleikju.