17. mars 2026
17. mars 2026
Vegna stöðu húsnæðis SAk á Kristnesi
Líkt og fram hefur komið hafa niðurstöður sýnatöku staðfest vöxt myglusveppa í hluta þeirra sýna sem tekin voru í hluta húsnæðis SAk á Kristnesi.

Í kjölfarið hefur verið unnið að því að taka fleiri sýni til að rannsaka umfang vandans. Smám saman erum við að fá frekari niðurstöður, en svo virðist sem vandinn sé mestur á jarðhæðum.
Einni hæð hefur verið lokað vegna þessa og þjónusta flutt annað. Enn sem komið er hefur ekki verið tekin ákvörðun um að ráðist verði í frekari lokanir eða að draga úr þjónustu vegna þessa. Hins vegar hefur starfsfólk þurft að sýna mikla útsjónarsemi til að tryggja þjónustu á Kristnesi og fyrir það ber að þakka.
Unnið er eins hratt og örugglega og hægt er að því að fá heildarsýn á stöðu húsnæðisins, sem er forsenda þess að taka ákvarðanir um þær aðgerðir sem nauðsynlegt verður að ráðast í. Á meðan á þessari óvissu stendur er áhersla fyrst og fremst lögð á að tryggja öryggi skjólstæðinga og starfsfólks, sem og að viðhalda starfsemi í húsnæðinu eins og hægt er.