Fara beint í efnið

9. september 2026

Veglegar gjafir til HSA í Neskaupstað

Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur að undanförnu tekið á móti fjölda veglegra gjafa til Umdæmissjúkrahússins í Neskaupstað og var haldið þakkarhóf í gær, 8. september til að veita þeim formlega viðtöku. Gjafirnar eru mikilvægt framlag til starfseminnar og stuðla að bættri aðstöðu, þjónustu og búnaði sem nýtast bæði fyrir skjólstæðinga og starfsfólk.

Heildarverðmæti gjafanna sem þakkað var fyrir nema tæpum 15 milljónum króna. Við færum eftirfarandi velunnurum okkar innilegar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning:

  • Hollvinasamtök Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað

  • Hosurnar

  • Hlynur Sveinsson

  • Kaupmannasamtökin

  • Kvenfélag Íslands

  • Olíusamlag útvegsmanna í Neskaupstað

Við erum afar þakklát fyrir þann hlýhug og stuðning sem stofnuninni er sýndur en gjafir sem þessar skipta okkur miklu máli og nýtast beint í þágu samfélagsins.