Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. september 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Vegaskoðun stórra ökutækja á Suður-, Suðvestur- og Vesturlandi

Lögreglumenn sem sinna sérstöku umferðareftirliti á Suðurlandi annarsvegar og á Vesturlandi hinsvegar komu saman til vinnu á Selfossi í gær og fóru í vegaskoðun stórra ökutækja. Við eftirlitið var notaður hemlaprófari sem þessi embætti ásamt embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra keyptu fyrir nokkru síðan. Hann var settur upp á plani við Skeiðavegamót og unnið að verkefninu þar í gær.

Skoðuð voru 10 ökutæki og hemlaprófuð. Á tveimur þeirra reyndust ójafnir hemlakraftar og aflögun á hjólaskálum yfir mörkum. Auk þessa voru gerðar athugasemdir við ljósabúnað einnar bifreiðar og brotnar framrúður í öðrum tveimur.

Ef niðurstaða hemlaprófunar gefur tilefni til athugasemda er ökutækið boðað til skoðunar í viðurkenndri skoðunarstöð og til þess gefinn ákveðinn frestur.

Frá vettvangi í gær

Niðurstöður þessarar vinnu í gær gefa tilefni til frekari aðgerða og mega ökumenn eiga von á því að ökutæki þeirra verði skoðuð með þessum hætti á næstu mánuðum.