21. nóvember 2025
21. nóvember 2025
Vefveiðar netsvikara í nafni Skattsins
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við vefveiðum í nafni Skattsins, en embættinu hafa borist tilkynningar vegna þessa.

Hvernig fara netsvikin fram?
Viðtakandi fær vefveiðapóst.
Í tölvupóstinum er viðtakanda tilkynnt að það liggi fyrir ógreidd krafa sem greiða eigi samdægurs. Í tölvupóstinum er einnig hlekkur á
. En á bakvið þennan hlekk er vefsíða sem er ekki tengd island.is heldur er hún tengd við greiðslugátt netsvikaranna.
Á vefsíðunni er óskað eftir kennitölu, símanúmeri og vali á viðskiptabanka áður en notandinn er fluttur yfir á greiðslusíðu.
Þessi svikasíða stelur kennitölu, símanúmeri og kreditkortaupplýsingum þeirra sem fylla út þessar upplýsingar
Ráðleggingar lögreglu
Lögregla hvetur öll til að vera á varðbergi gagnvart slíkum fjársvikum yfir netið og vill minna á að:
Skoða vel og vandlega slóðina á greiðslusíðum, oft eru vefveiðivefsíður á .app, .top, .xyz lénum, en alls ekki hægt að útiloka að .is lén séu notuð við vefveiðarnar
Opinber vefur Skattsins er skatturinn.is
Opinberar stofnanir biðja aldrei um banka- eða kreditkortaupplýsingar í tölvupósti
Ekki smella á hlekki sem þið fáið í grunsamlegum tölvupóstum
Ef þú ert í vafa, hafa beint samband við Skattinn í síma
Ef þú hefur smellt á hlekk eða orðið fyrir fjársvikum:
Hafðu strax samband við bankann þinn
Hafðu samband við lögreglu í síma 444-1000
Safnaðu öllum upplýsingum um atvikið og sendu á
