Fara beint í efnið

18. maí 2026

Vaxandi áhugi á Nordplus-samstarfi

Stjórnarnefnd Nordplus-áætlunarinnar hefur samþykkt 360 umsóknir um styrki að heildarupphæð rúmlega 13,7 milljónir evra í síðustu umsóknarlotu.

Áhugi á Nordplus-áætluninni hefur farið vaxandi frá heimsfaraldrinum og sýnir það að menntasamfélagið á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum hefur mikinn áhuga á ferðalögum, samstarfi og að afla sér þekkingar og reynslu frá nágrannalöndum sínum.

Fyrir umsóknarfrestinn 2. febrúar 2026 bárust alls 635 umsóknir til Nordplus-áætlunarinnar þar sem sótt var um styrki að heildarupphæð 31.543.977 evra.

Nær öll þátttökulönd eiga fulltrúa í umsóknunum og endurspeglar þátttakan að mestu leyti hlutfallslega stærð íbúa hvers lands. Eistland, Lettland og Litháen taka sameiginlega þátt í samræmi við íbúafjölda Eystrasaltslandanna. Hins vegar er þátttaka Íslands, Álandseyja, Grænlands og Færeyja meiri en búast mætti við miðað við smæð samfélaganna.

Íslenskar menntastofnanir sýna áfram mikinn áhuga á norrænu og baltnesku samstarfi. Um 8% allra umsókna í ár komu frá Íslandi sem er mjög hátt hlutfall miðað við stærð landsins og sýnir vel hversu öflugt alþjóðlegt samstarf er innan íslensks menntasamfélags.

segir Eydís Inga Valsdóttir, verkefnastjóri Nordplus á Íslandi.

Hlutfall umsækjenda og styrkþega eftir löndum er svipað árið 2026 og það var árið 2025.

Samþykktar umsóknir og styrkir Nordplus 2026

Undiráætlun

Samþykktar umsóknir

Samþykktir styrkir

Háskólastig

156

5.401.170 evrur

Junior

101

3.765.063 evrur

Fullorðinsfræðsla

53

1.886.506 evrur

Þverfaglegt samstarf

21

1.249.138 evrur

Norræn tungumál

29

1.436.208 evrur

Samtals

360

13.738.085 evrur

Nordplus er menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og styður við samstarf, tengslamyndun, þróunarverkefnum og miðlun þekkingar á Norðurlöndum og í Eystrasalöndunum. Áætlunin veitir kennurum, nemendum og þátttakendum á öllum skólastigum – frá leikskóla til háskóla og fullorðinsfræðslu – styrki til náms- og starfsþróunar sem stuðla meðal annars að því að miðla reynslu, tungumálakunnáttu og menningarskilningi.