Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. júlí 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Varað við sölumönnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill ítreka varnaðarorð sín til þeirra sem íhuga að eiga viðskipti við vingjarnlega, erlenda sölumenn sem bjóða vandaðan fatnað til sölu á mjög hagstæðu verði, en grunur leikur á að varningurinn sé ekki í þeim gæðaflokki sem fullyrt er. Fyrr í dag leitaði maður til lögreglu og sagði farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti við tvo erlenda menn, en þeir seldu honum nokkra jakka eftir að hafa tekið hann fyrst tali á bifreiðastæði við banka í austurborginni. Grunur leikur á að flíkurnar sem maðurinn keypti séu ekki í þeim gæðaflokki sem um var talað. Sölumennirnir eru sjálfir jakkafataklæddir og koma vel fyrir og virðast eiga auðvelt með að blekkja fólk, en málið frá því fyrr í dag er ekki það eina sem hefur ratað á borð lögreglu. Ef fólk sér til umræddra sölumanna, sem sagðir eru vera á ljósgrárri bifreið, er það beðið um láta lögreglu vita.