Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. febrúar 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Varað við hlutabréfaviðskiptum

Undanfarið hafa borist tilkynningar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að verið sé að hringja í fólk fyrirvaralaust erlendis frá og bjóða fram hagstæð kaup á hlutabréfum í erlendum fyrirtækjum. Lögreglan telur rétt að vara við að taka þátt í öllum slíkum viðskiptum enda hafa komið upp tilvik þar sem tapast hafa milljónir króna er menn hafa látið blekkjast.

Fjársvik af þessu tagi hafa aukist mjög á meginlandi Evrópu og kallast þar “boiler room fraud” þar sem boðin er til sölu hlutabréf á hagstæðu verði með loforðum um skjótfengin gróða. Tilboð þessi geta verið mjög sannfærandi með tilheyrandi tilvísunum á heimasíður viðkomandi fyrirtækja sem mörg hver eru starfandi. Kaupandi fær yfirleitt skriflega staðfestingu fyrir kaupunum á hlutabréfunum sem síðar reynist ekki pappírsins virði. Afar erfitt getur reynst að endurheimta nokkuð af þeim peningum sem menn láta af hendi í þessum viðskiptum.