26. ágúst 2016
26. ágúst 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Varað við fentanýl
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minnir á að notkun verkjalyfsins fentanýl skal ávallt vera í samráði við lækni. Fentanýl er mjög sterkt verkjalyf og getur valdið dauða hjá þeim sem kunna ekki með það að fara. Fjölmörg dauðsföll á Norðurlöndunum eru rakin til notkunar á fentanýl, en lögreglan rannsakar nú andlát ungs manns á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi þar sem grunur leikur á að umrætt lyf hafi komið við sögu. Lögreglan hefur jafnframt áhyggjur að fentanýl kunni að ganga hér kaupum og sölum í formi dufts, kristalla og taflna. Vitað er að fentanýl er boðið til sölu á netinu hjá aðilum í Asíu og Suður-Ameríku. Lögreglan ítrekar að fentanýl er mjög sterkt verkjalyf og því stórhættulegt í höndum þeirra sem kunna ekki með það að fara og á einvörðungu að nota í samráði við lækni.
Við minnum á umfjöllun um fentanýl á heimasíðum embættis landlæknis og Lyfju, en hlekkina má sjá hér að neðan: